Ríkjaheiti
Skýringar
- Starfshópur um ríkjaheiti tók saman heitin í fyrsta og öðrum dálki, apríl 2015. Í starfshópnum sátu fulltrúar frá Hagstofu Íslands (Auður Ólína Svavarsdóttir deildarstjóri), Íslenskri málnefnd (Haraldur Bernharðsson dósent), Ríkisútvarpinu (Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur), Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum (Ari Páll Kristinsson rannsóknarprófessor) og utanríkisráðuneytinu (Jón Egill Egilsson prótókollsstjóri).
- Skráin hefur aðeins að geyma heiti landa sem njóta viðurkenningar sem sjálfstæð ríki.
- Heitin í fremsta dálki nægja í flestum tilvikum í almennri málnotkun.
- Í öðrum dálki er sýnt fullt (formlegt) heiti ríkis ef það er frábrugðið nafnmyndinni í fyrsta dálki. Við vissar aðstæður þarf að nota fullt (formlegt) heiti.
- Í sumum tilvikum má í íslensku nota tvö mismunandi heiti eða ritmyndir um sama ríki. Í skránni standa hin valkvæðu heiti í sama reit. Ef hin valkvæðu heiti eða ritmyndir hefjast á mismunandi bókstöfum (t.d. Cabo Verde og Grænhöfðaeyjar eða Sambía og Zambia) er aftara heitið þó einnig haft á sínum stafrófsstað í skránni (Grænhöfðaeyjar undir G, Zambia undir Z) og þaðan er vísað með ör (→) á fremri staðinn (þ.e. úr Grænhöfðaeyjar í Cabo Verde, úr Zambia í Sambía o.s.frv.). Þetta er gert til að valkvæð mynd fari síður fram hjá notendum ríkjaheitaskrárinnar. Ef málræktarsvið Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum mælir með annarri hvorri valkvæðu myndanna í fremsta dálki fremur en hinni, að jafnaði í íslenskum textum, er það gefið til kynna með því að feitletra aðeins þá ritmynd en ekki hina.
- Í þriðja dálki er sýnt heiti ríkisins á ensku eins og það er birt í ISO-staðlinum 3166-1 (þar undir yfirskriftinni „English short name“), í landaheitaskrá UNGEGN, sérfræðingahóps Sameinuðu þjóðanna um örnefni (þar undir yfirskriftinni „UN Official English – Short name“), á vefsíðu Sameinuðu þjóðanna um aðildarríki (http://www.un.org/en/members/) eða öðrum traustum heimildum.
- Í fjórða/fimmta dálki eru tveggja og þriggja stafa ISO-kóðar viðkomandi ríkis skv. ISO-staðlinum 3166-1. Tveggja stafa kóðar eru víða notaðir en þriggja stafa kóðar samsvara oft betur heitum ríkjanna.
- Í sjötta og sjöunda dálki eru sýnd íbúaheiti (í karlkyni eintölu) og lýsingarorð (í karlkyni eintölu) sem svara til viðkomandi ríkis. Í meginatriðum er þar byggt á Stafsetningarorðabókinni (2006).
- Áttundi og aftasti dálkur sýnir opinber(t) tungumál ríkis. Jafnframt eru tilgreindir þriggja bókstafa ISO-kóðar tungumálanna, skv. staðlinum ISO 639-3. Þessi dálkur er byggður á íðorðaskránni Tungumálaheiti (1. útg. 2014) sem Ari Páll Kristinsson samdi og birtur er í Íðorðabanka Árnastofnunar.
Ari Páll Kristinsson skrásetti, maí/júní 2015
Almennt heiti |
Fullt (formlegt) heiti |
Enska |
Kóðar |
Íbúaheiti (kk. et.) |
Lýsingarorð (kk. et.) |
Opinber(t) tungumál |
||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Afganistan |
Íslamska lýðveldið Afganistan |
Afghanistan |
AF |
AFG |
Afgani | afganskur |
pastó pus persneska fas [darí prs] |
|
Albanía |
Lýðveldið Albanía |
Albania |
AL |
ALB |
Albani | albanskur | albanska sqi | |
Alsír |
Alþýðulýðveldið Alsír |
Algeria |
DZ |
DZA |
Alsíringur | alsírskur | arabíska ara | |
Andorra |
Furstadæmið Andorra |
Andorra |
AD |
AND |
Andorramaður | andorrskur | katalónska cat | |
Angóla |
Lýðveldið Angóla |
Angola |
AO |
AGO |
Angólamaður | angólskur | portúgalska por | |
Antígva og Barbúda Antigua og Barbuda |
|
Antigua and Barbuda |
AG |
AGT |
Antígvamaður | antígskur | enska eng | |
Argentína |
Argentínska lýðveldið |
Argentina |
AR |
ARG |
Argentínumaður | argentínskur | spænska spa | |
Armenía |
Lýðveldið Armenía |
Armenia |
AM |
ARM |
Armeni | armenskur | armenska hye | |
Aserbaísjan Azerbaijan |
Lýðveldið Aserbaísjan Lýðveldið Azerbaijan |
Azerbaijan |
AZ |
AZE |
Aseri | aserskur | aserska aze | |
Austurríki |
Lýðveldið Austurríki |
Austria |
AT |
AUT |
Austurríkismaður | austurrískur | þýska deu | |
Ástralía |
Samveldið Ástralía |
Australia |
AU |
AUS |
Ástrali Ástralíumaður |
ástralskur | enska eng | |
Bahamaeyjar |
Samveldið Bahamaeyjar |
Bahamas (the) |
BS |
BHS |
Bahameyingur | bahameyskur | enska eng | |
Bandaríkin |
Bandaríki Ameríku |
United States of America (the) |
US |
USA |
Bandaríkjamaður | bandarískur | enska eng | |
Bangladess Bangladesh |
Alþýðulýðveldið Bangladess Alþýðulýðveldið Bangladesh |
Bangladesh |
BD |
BGD |
Bangladessi | bangladesskur | bengalska ben | |
Barbados |
|
Barbados |
BB |
BRB |
Barbadosi | barbadoskur | enska eng | |
Barein |
Konungsríkið Barein |
Bahrain |
BH |
BHR |
Bareini | bareinskur | arabíska ara | |
Hvíta-Rússland Belarús |
Lýðveldið Belarús |
Belarus |
BY |
BLR |
Hvít-Rússi | hvítrússneskur |
hvítrússneska bel rússneska rus |
|
Belgía |
Konungsríkið Belgía |
Belgium |
BE |
BEL |
Belgi | belgískur |
franska fra hollenska [flæmska] nld þýska deu |
|
Belís Belize |
|
Belize |
BZ |
BLZ |
Belísi | belískur | enska eng | |
Benín |
Lýðveldið Benín |
Benin |
BJ |
BEN |
Beníni | benínskur |
franska fra |
|
Bosnía og Hersegóvína Bosnia og Herzegovina |
|
Bosnia and Herzegovina
|
BA |
BIH |
Bosníumaður | bosnískur |
bosníska bos króatíska hrv serbneska srp |
|
Botsvana Botswana |
Lýðveldið Botsvana Lýðveldið Botswana |
Botswana |
BW |
BWA |
Botsvanamaður | botsvanskur |
enska eng |
|
Bólivía |
Fjölþjóðaríkið Bólivía |
Bolivia (Plurinational State of) |
BO |
BOL |
Bólivíumaður | bólivískur | spænska spa | |
Brasilía |
Sambandslýðveldið Brasilía |
Brazil |
BR |
BRA |
Brasilíumaður | brasilískur | portúgalska por | |
Bretland |
Sameinaða konungsríkið Stóra-Bretland og Norður-Írland |
United Kingdom of Great Britain and Northern Ireland (the) |
GB |
GBR |
Breti | breskur | enska eng | |
Brúnei |
Brúnei Darrússalam |
Brunei Darussalam |
BN |
BRN |
Brúneimaður | brúneiskur |
enska eng malajíska msa |
|
Búlgaría |
Lýðveldið Búlgaría |
Bulgaria |
BG |
BGR |
Búlgari | búlgarskur | búlgarska bul | |
Búrkína Fasó |
|
Burkina Faso |
BF |
BFA |
Búrkíni | búrkínskur |
franska fra |
|
Búrúndí |
Lýðveldið Búrúndí |
Burundi |
BI |
BDI |
Búrúndi | búrúndískur |
búrúndíska run franska fra |
|
Bútan |
Konungsríkið Bútan |
Bhutan |
BT |
BTN |
Bútani | bútanskur | bútanska dzo | |
Grænhöfðaeyjar Cabo Verde |
Lýðveldið Cabo Verde |
Cabo Verde |
CV |
CPV |
Grænhöfðeyingur | grænhöfðeyskur | portúgalska por | |
Tjad Chad |
Lýðveldið Tjad Lýðveldið Chad |
Chad |
TD |
TCD |
Tjadi | tjadneskur |
arabíska ara franska fra |
|
Chile Síle |
Lýðveldið Chile Lýðveldið Síle |
Chile |
CL |
CHL |
Chile-maður Sílemaður |
chileskur síleskur |
spænska spa |
|
Kosta Ríka Costa Rica |
Lýðveldið Kosta Ríka Lýðveldið Costa Rica |
Costa Rica | CR | CRI | Kosta Ríka-maður | kostarískur | spænska spa | |
Kólumbía Colombia |
Lýðveldið Kólumbía Lýðveldið Colombia |
Colombia |
CO |
COL |
Kólumbíumaður | kólumbískur |
spænska spa |
|
Fílabeinsströndin Côte d‘Ivoire |
Lýðveldið Côte d‘Ivoire |
Côte d‘Ivoire |
CI |
CIV |
Fílabeinsstrendingur |
franska fra |
||
Danmörk |
Konungsríkið Danmörk |
Denmark |
DK |
DNK |
Dani | danskur | danska dan | |
Djibútí |
Lýðveldið Djibútí |
Djibouti |
DJ |
DJI |
Djibúti | djibútískur |
arabíska ara franska fra |
|
Dóminíka |
Samveldið Dóminíka |
Dominica |
DM |
DMA |
Dóminíkumaður | dóminískur | enska eng | |
Dóminíska lýðveldið |
|
Dominican Republic (the) |
DO |
DOM |
Dóminíki | dóminískur |
spænska spa |
|
Egyptaland |
Arabalýðveldið Egyptaland |
Egypt |
EG |
EGY |
Egypti | egypskur | arabíska ara | |
Eistland |
Lýðveldið Eistland |
Estonia |
EE |
EST |
Eisti Eistlendingur |
eistneskur | eistneska est | |
Ekvador |
Lýðveldið Ekvador |
Ecuador |
EC |
ECU |
Ekvadori | ekvadorskur |
spænska spa |
|
El Salvador |
Lýðveldið El Salvador |
El Salvador |
SV |
SLV |
Salvadori | salvadorskur |
spænska spa |
|
Eritrea |
Eritreuríki |
Eritrea |
ER |
ERI |
Eritreumaður | eritreskur |
arabíska ara enska eng tígrinja tir |
|
Eþíópía |
Sambandslýðstjórnarlýðveldið Eþíópía |
Ethiopia |
ET |
ETH |
Eþíópíumaður | eþíópískur | amharíska amh | |
Fídjí Fiji |
Lýðveldið Fídjí Lýðveldið Fiji |
Fiji |
FJ |
FJI |
Fídji | fídjískur |
enska eng fídjíska fij |
|
Filippseyjar |
Lýðveldið Filippseyjar |
Philippines (the) |
PH |
PHL |
Filippseyingur | filippseyskur |
enska eng tagalog tgl |
|
Finnland |
Lýðveldið Finnland |
Finland |
FI |
FIN |
Finni | finnskur |
finnska fin sænska swe |
|
Fílabeinsströndin → Côte d´Ivoire, Fílabeinsströndin |
Lýðveldið Côte d‘Ivoire |
Côte d‘Ivoire |
CI |
CIV |
Fílabeinsstrendingur |
franska fra |
||
Frakkland |
Franska lýðveldið |
France |
FR |
FRA |
Frakki | franskur |
franska fra |
|
Gabon |
Gabonska lýðveldið |
Gabon |
GA |
GAB |
Gaboni | gabonskur |
franska fra |
|
Gambía |
Lýðveldið Gambía |
Gambia (the) |
GM |
GMB |
Gambi | gambískur | enska eng | |
Gana Ghana |
Lýðveldið Gana Lýðveldið Ghana |
Ghana |
GH |
GHA |
Ganverji | ganverskur | enska eng | |
Georgía |
|
Georgia |
GE |
GEO |
Georgíumaður | georgískur | georgíska kat | |
Gínea |
Lýðveldið Gínea |
Guinea |
GN |
GIN |
Gínei | gíneskur |
franska fra |
|
Gínea-Bissaú |
Lýðveldið Gínea-Bissaú |
Guinea-Bissau |
GW |
GNB |
Bissaúi, Gíne-Bissaúi | bissaúskur, gínebissaúskur | portúgalska por | |
Grenada |
|
Grenada |
GD |
GRD |
Grenadamaður | grenadískur | enska eng | |
Grikkland |
Hellenska lýðveldið |
Greece |
GR |
GRC |
Grikki | grískur | gríska ell | |
Grænhöfðaeyjar → Cabo Verde, Grænhöfðaeyjar |
Lýðveldið Cabo Verde |
Cabo Verde |
CV |
CPV |
Grænhöfðeyingur | grænhöfðeyskur | portúgalska por | |
Gvatemala Guatemala |
Lýðveldið Gvatemala Lýðveldið Guatemala |
Guatemala |
GT |
GTM |
Gvatemalamaður | gvatemalskur |
spænska spa |
|
Gvæjana Guyana |
Samvinnulýðveldið Gvæjana Samvinnulýðveldið Guyana |
Guyana |
GY |
GUY |
Gvæjanamaður | gvæjanskur | enska eng | |
Haítí |
Lýðveldið Haítí |
Haiti |
HT |
HTI |
Haíti | haítískur |
franska fra haítíska hat |
|
Holland Niðurland |
Konungsríki Niðurlanda |
Netherlands (the) |
NL |
NLD |
Hollendingur | hollenskur | hollenska nld | |
Hondúras |
Lýðveldið Hondúras |
Honduras |
HN |
HND |
Hondúri | hondúrskur |
spænska spa |
|
Hvíta-Rússland → Belarús, Hvíta-Rússland |
Lýðveldið Belarús |
Belarus |
BY |
BLR |
Hvít-Rússi |
hvítrússneskur |
hvítrússneska bel rússneska rus |
|
Indland |
Lýðveldið Indland |
India |
IN |
IND |
Indverji |
indverskur |
enska eng hindí hin |
|
Indónesía |
Lýðveldið Indónesía |
Indonesia |
ID |
IDN |
Indónesi |
indónesískur |
indónesíska ind | |
Írak |
Lýðveldið Írak |
Iraq |
IQ |
IRQ |
Íraki |
írakskur |
arabíska ara | |
Íran |
Íslamska lýðveldið Íran |
Iran (Islamic Republic of) |
IR |
IRN |
Írani |
íranskur |
persneska fas [vesturfarsí pes] | |
Írland |
|
Ireland |
IE |
IRL |
Íri |
írskur |
enska eng írska gle |
|
Ísland |
|
Iceland |
IS |
ISL |
Íslendingur |
íslenskur |
íslenska isl | |
Ísrael |
Ísraelsríki |
Israel |
IL |
ISR |
Ísraeli |
ísraelskur |
arabíska ara hebreska heb |
|
Ítalía |
Ítalska lýðveldið |
Italy |
IT |
ITA |
Ítali |
ítalskur |
ítalska ita | |
Jamaíka |
|
Jamaica |
JM |
JAM |
Jamaíki |
jamaískur |
enska eng | |
Japan |
|
Japan |
JP |
JPN |
Japani |
japanskur |
japanska jpn | |
Jemen |
Lýðveldið Jemen |
Yemen |
YE |
YEM |
Jemeni |
jemenskur |
arabíska ara | |
Jórdanía |
Hasémíska konungsríkið Jórdanía |
Jordan |
JO |
JOR |
Jórdani |
jórdanskur |
arabíska ara | |
Kambódía |
Konungsríkið Kambódía |
Cambodia |
KH |
KHM |
Kambódíumaður |
kambódískur |
kambódíska khm | |
Kamerún |
Lýðveldið Kamerún |
Cameroon |
CM |
CMR |
Kamerúni |
kamerúnskur |
enska eng franska fra |
|
Kanada |
|
Canada |
CA |
CAN |
Kanadamaður |
kanadískur |
enska eng franska fra |
|
Kasakstan |
Lýðveldið Kasakstan |
Kazakhstan |
KZ |
KAZ |
Kasaki |
kasakskur |
kasakska kaz rússneska rus |
|
Katar |
Katarríki |
Qatar |
QA |
QAT |
Katari |
katarskur |
arabíska ara | |
Kenía Kenya |
Lýðveldið Kenía Lýðveldið Kenya |
Kenya |
KE |
KEN |
Keníumaður | kenískur |
enska eng svahílí swa |
|
Kirgistan Kyrgyzstan |
Kirgiska lýðveldið Kyrgyzka lýðveldið |
Kyrgyzstan |
KG |
KGZ |
Kirgisi | kirgiskur |
kirgiska kir rússneska rus |
|
Kína |
Alþýðulýðveldið Kína |
China |
CN |
CHN |
Kínverji | kínverskur | kínverska zho | |
Kíribatí |
Lýðveldið Kíribatí |
Kiribati |
KI |
KIR |
Kíribati | kíribatískur |
enska eng kíribatíska gil |
|
Kongó Lýðstjórnarlýðveldið Kongó |
Lýðstjórnarlýðveldið Kongó |
Congo (the Democratic Republic of the) |
CD |
COD |
Kongómaður | kongóskur |
franska fra |
|
Kongó Lýðveldið Kongó |
Lýðveldið Kongó |
Congo (the) |
CG |
COG |
Kongómaður | kongóskur |
franska fra |
|
Kosta Ríka → Costa Rica, Kosta Ríka |
Lýðveldið Kosta Ríka Lýðveldið Costa Rica |
Costa Rica |
CR |
CRI |
Kosta Ríka-maður | kostarískur |
spænska spa |
|
Kólumbía → Colombia, Kólumbía |
Lýðveldið Kólumbía Lýðveldið Colombia |
Colombia |
CO |
COL |
Kólumbíumaður | kólumbískur |
spænska spa |
|
Kómorur (kv. ft.) |
Kómorsambandið |
Comoros (the) |
KM |
COM |
Kómori | kómorskur |
arabíska ara franska fra |
|
Kórea Norður-Kórea |
Alþýðulýðveldið Kórea |
Korea (the Democratic People‘s Republic of) |
KP |
PRK |
Kóreumaður Norður-Kóreumaður |
kóreskur norðurkóreskur |
kóreska kor | |
Kórea Suður-Kórea |
Lýðveldið Kórea |
Korea (the Republic of) |
KR |
KOR |
Kóreumaður Suður-Kóreumaður |
kóreskur suðurkóreskur |
kóreska kor | |
Kósovó |
Lýðveldið Kósovó |
Kosovo |
(XK) |
|
Kósovói | kósovóskur |
albanska sqi serbneska srp |
|
Króatía |
Lýðveldið Króatía |
Croatia |
HR |
HRV |
Króati | króatískur | króatíska hrv | |
Kúba | Lýðveldið Kúba | Cuba |
CU |
CUB |
Kúbumaður Kúbverji |
kúbverskur | spænska spa | |
Kúveit Kuwait |
Kúveitríki Kuwait-ríki |
Kuwait |
KW |
KWT |
Kúveiti | kúveiskur | arabíska ara | |
Kýpur |
Lýðveldið Kýpur |
Cyprus |
CY |
CYP |
Kýpverji | kýpverskur |
gríska ell tyrkneska tur |
|
Laos |
Laoska alþýðulýðveldið |
Lao People‘s Democratic Republic (the) |
LA |
LAO |
Laosi | laoskur | laoska lao | |
Lesótó |
Konungsríkið Lesótó |
Lesotho |
LS |
LSO |
Lesótómaður | lesótóskur |
enska eng suðursótó sot |
|
Lettland Latvija |
Lýðveldið Lettland Lýðveldið Latvija |
Latvia | LV | LVA | Letti | lettneskur | lettneska lav | |
Liechtenstein |
Furstadæmið Liechtenstein |
Liechtenstein |
LI |
LIE |
Liechtensteini | liechtensteinskur | þýska deu | |
Litáen Lietuva |
Lýðveldið Litáen Lýðveldið Lietuva |
Lithuania |
LT |
LTU |
Litái | litáískur | litáíska lit | |
Líbanon |
Líbanska lýðveldið |
Lebanon |
LB |
LBN |
Líbani | líbanskur | arabíska ara | |
Líbería |
Lýðveldið Líbería |
Liberia |
LR |
LBR |
Líberíumaður | líberískur | enska eng | |
Líbía |
|
Libya |
LY |
LBY |
Líbíumaður | líbískur | arabíska ara | |
Lúxemborg |
Stórhertogadæmið Lúxemborg |
Luxembourg |
LU |
LUX |
Lúxemborgari | lúxemborgskur |
franska fra lúxemborgska ltz þýska deu |
|
Madagaskar |
Lýðveldið Madagaskar |
Madagascar |
MG |
MDG |
Madagaski | madagaskur |
enska eng franska fra malagasíska mlg |
|
Makedónía |
Makedónía (Fyrrverandi lýðveldi Júgóslavíu) |
Macedonia (the former Yugoslav Republic of) |
MK |
MKD |
Makedóníumaður | makedónskur | makedónska mkd | |
Malasía |
|
Malaysia |
MY |
MYS |
Malasi | malasískur |
malajíska msa |
|
Malaví |
Lýðveldið Malaví |
Malawi |
MW |
MWI |
Malavi | malavískur |
enska eng malavíska nya |
|
Maldívur (kv. ft.) |
Lýðveldið Maldívur |
Maldives |
MV |
MDV |
Maldívi | maldívskur | maldívska div | |
Malí |
Lýðveldið Malí |
Mali |
ML |
MLI |
Malímaður | malískur |
franska fra |
|
Malta |
Lýðveldið Malta |
Malta |
MT |
MLT |
Maltverji Möltumaður |
maltneskur maltverskur |
enska eng maltneska mlt |
|
Marokkó |
Konungsríkið Marokkó |
Morocco |
MA |
MAR |
Marokkómaður | marokkóskur |
arabíska ara |
|
Marshall-eyjar |
Lýðveldið Marshall-eyjar |
Marshall Islands (the) |
MH |
MHL |
Marshall-eyingur | marshalleyskur |
enska eng marshalleyska mah |
|
Máritanía |
Íslamska lýðveldið Máritanía |
Mauritania |
MR |
MRT |
Máritani | máritanskur | arabíska ara | |
Máritíus |
Lýðveldið Máritíus |
Mauritius |
MU |
MUS |
Máritíusmaður | máritískur | enska eng | |
Mexíkó |
Mexíkóska ríkjasambandið |
Mexico |
MX |
MEX |
Mexíkói Mexíkómaður |
mexíkóskur |
spænska spa |
|
Mið-Afríkulýðveldið |
|
Central African Republic (the) |
CF |
CAF |
Mið-Afríkumaður | miðafrískur |
franska fra sangó sag |
|
Miðbaugs-Gínea |
Lýðveldið Miðbaugs-Gínea |
Equatorial Guinea |
GQ |
GNQ |
Miðbaugs-Gíneumaður | miðbaugsgíneskur |
franska fra portúgalska por spænska spa |
|
Míkrónesía |
Sambandsríki Míkrónesíu |
Micronesia (Federated States of) |
FM |
FSM |
Míkrónesíumaður | míkrónesískur | enska eng | |
Mjanmar Myanmar |
Mjanmarsambandið Myanmar-sambandið |
Myanmar |
MM |
MMR |
Mjanmari | mjanmarskur | búrmneska mya | |
Moldóva |
Lýðveldið Moldóva |
Moldova (the Republic of) |
MD |
MDA |
Moldóvi | moldóvskur | moldóvska mol | |
Mongólía |
|
Mongolia |
MN |
MNG |
Mongólíumaður | mongólskur | mongólska mon | |
Svartfjallaland Montenegró |
|
Montenegro |
ME |
MNE |
Svartfellingur | svartfellskur | svartfellska srp | |
Mónakó |
Furstadæmið Mónakó |
Monaco |
MC |
MCO |
Mónakómaður | mónakóskur |
franska fra |
|
Mósambík |
Lýðveldið Mósambík |
Mozambique |
MZ |
MOZ |
Mósambíki | mósambískur | portúgalska por | |
Namibía |
Lýðveldið Namibía |
Namibia |
NA |
NAM |
Namibíumaður | namibískur | enska eng | |
Naúrú |
Lýðveldið Naúrú |
Nauru |
NR |
NRU |
Naúrúi | naúrúskur |
enska eng naúrúska nau |
|
Nepal |
Sambandslýðstjórnarlýðveldið Nepal |
Nepal |
NP |
NPL |
Nepali | nepalskur | nepalska nep | |
Níkaragva Nicaragua |
Lýðveldið Níkaragva Lýðveldið Nicaragua |
Nicaragua |
NI |
NIC |
Níkaragvamaður | níkaragskur |
spænska spa |
|
Niðurland → Holland, Niðurland |
Konungsríki Niðurlanda |
Netherlands (the) |
NL |
NLD |
Hollendingur | hollenskur | hollenska nld | |
Níger |
Lýðveldið Níger |
Niger (the) |
NE |
NER |
Nígermaður | nígerskur |
franska fra |
|
Nígería |
Sambandslýðveldið Nígería |
Nigeria |
NG |
NGA |
Nígeríumaður | nígerískur | enska eng | |
Noregur |
Konungsríkið Noregur |
Norway |
NO |
NOR |
Norðmaður | norskur | norska nor [bókmál nob] [nýnorska nno] | |
Nýja-Sjáland |
|
New Zealand |
NZ |
NZL |
Nýsjálendingur | nýsjálenskur |
enska eng maóríska mri |
|
Óman |
Soldánsveldið Óman |
Oman |
OM |
OMN |
Ómani | ómanskur | arabíska ara | |
Pakistan |
Íslamska lýðveldið Pakistan |
Pakistan |
PK |
PAK |
Pakistani | pakistanskur |
enska eng úrdú urd |
|
Palaú |
Lýðveldið Palaú |
Palau |
PW |
PLW |
Palaúi | palaúskur |
enska eng palaúska pau |
|
Palestína |
Palestínuríki |
Palestine, State of |
PS |
PSE |
Palestínumaður | palestínskur | arabíska ara | |
Panama |
Lýðveldið Panama |
Panama |
PA |
PAN |
Panamamaður | panamskur |
spænska spa |
|
Papúa Nýja-Gínea |
Sjálfstæða ríkið Papúa Nýja-Gínea |
Papua New Guinea |
PG |
PNG |
Papúamaður | papúskur |
enska eng hírímótú hmo tokpísín tpi |
|
Paragvæ Paraguay |
Lýðveldið Paragvæ Lýðveldið Paraguay |
Paraguay |
PY |
PRY |
Paragvæi | paragvæskur |
gvaraníska grn spænska spa |
|
Páfagarður Vatíkanið |
Vatíkanborgríkið |
Vatican City State |
|
|
ítalska ita | |||
Páfastóll | Holy See (the) | VA | VAT |
ítalska ita latína lat |
||||
Perú |
Lýðveldið Perú |
Peru |
PE |
PER |
Perúmaður | perúskur |
aímara aym ketsúska que spænska spa |
|
Portúgal |
Portúgalska lýðveldið |
Portugal |
PT |
PRT |
Portúgali | portúgalskur | portúgalska por | |
Pólland |
Lýðveldið Pólland |
Poland |
PL |
POL |
Pólverji | pólskur | pólska pol | |
Rúanda Rwanda |
Lýðveldið Rúanda Lýðveldið Rwanda |
Rwanda |
RW |
RWA |
Rúandamaður |
rúandskur |
enska eng franska fra rúandska kin |
|
Rúmenía |
|
Romania |
RO |
ROU |
Rúmeni |
rúmenskur |
rúmenska ron | |
Rússland |
Rússneska sambandsríkið |
Russian Federation (the) |
RU |
RUS |
Rússi |
rússneskur |
rússneska rus | |
Salómonseyjar |
|
Solomon Islands |
SB |
SLB |
Salómonseyingur |
salómonseyskur |
enska eng | |
Sambía Zambia |
Lýðveldið Sambía Lýðveldið Zambia |
Zambia |
ZM |
ZMB |
Sambíumaður |
sambískur |
enska eng | |
Sameinuðu arabísku furstadæmin |
|
United Arab Emirates (the) |
AE |
ARE |
arabíska ara | |||
Samóa |
Sjálfstæða ríkið Samóa |
Samoa |
WS |
WSM |
Samóamaður | samóskur |
enska eng samóska smo |
|
San Marínó |
Lýðveldið San Marínó |
San Marino |
SM |
SMR |
San Marínó-maður | sanmarínóskur | ítalska ita | |
Sankti Kitts og Nevis |
Sambandsríkið Sankti Kitts og Nevis |
Saint Kitts and Nevis |
KN |
KNA |
enska eng | |||
Sankti Lúsía |
|
Saint Lucia |
LC |
LCA |
enska eng | |||
Sankti Vinsent og Grenadínur (kv. ft.) |
|
Saint Vincent and the Grenadines |
VC |
VCT |
enska eng | |||
Saó Tóme og Prinsípe |
Lýðstjórnarlýðveldið Saó Tóme og Prinsípe |
Sao Tome and Principe |
ST |
STP |
portúgalska por | |||
Sádi-Arabía |
Konungsríkið Sádi-Arabía |
Saudi Arabia |
SA |
SAU |
Sádi-Arabi | sádiarabískur | arabíska ara | |
Senegal |
Lýðveldið Senegal |
Senegal |
SN |
SEN |
Senegali | senegalskur |
franska fra |
|
Serbía |
Lýðveldið Serbía |
Serbia |
RS |
SRB |
Serbi |
serbneskur |
serbneska srp | |
Seychelles-eyjar |
Lýðveldið Seychelles-eyjar |
Seychelles |
SC |
SYC |
Seychelles-eyingur |
seychelleseyskur |
enska eng franska fra seychelleseyska crs |
|
Simbabve Zimbabwe |
Lýðveldið Simbabve Lýðveldið Zimbabwe |
Zimbabwe |
ZW |
ZWE |
Simbabvemaður | simbabveskur | enska eng | |
Singapúr Singapore |
Lýðveldið Singapúr Lýðveldið Singapore |
Singapore |
SG |
SGP |
Singapúri | singapúrskur |
enska eng kínverska zho malajíska msa tamíl tam |
|
Síerra Leóne |
Lýðveldið Síerra Leóne |
Sierra Leone |
SL |
SLE |
Síerra Leóne-maður | síerraleónskur | enska eng | |
Síle → Chile, Síle |
Lýðveldið Chile Lýðveldið Síle |
Chile |
CL |
CHL |
Chile-maður Sílemaður |
chileskur síleskur |
spænska spa |
|
Slóvakía |
Slóvakíska lýðveldið |
Slovakia |
SK |
SVK |
Slóvaki | slóvakískur | slóvakíska slk | |
Slóvenía |
Lýðveldið Slóvenía |
Slovenia |
SI |
SVN |
Slóveni | slóvenskur | slóvenska slv | |
Sómalía |
Sambandslýðveldið Sómalía |
Somalia |
SO |
SOM |
Sómali | sómalískur |
arabíska ara sómalíska som |
|
Spánn |
Konungsríkið Spánn |
Spain |
ES |
ESP |
Spánverji | spænskur |
spænska spa |
|
Srí Lanka |
Sósíalíska lýðstjórnarlýðveldið Srí Lanka |
Sri Lanka |
LK |
LKA |
Srí Lanka-maður | srílankskur |
enska eng singalíska sin tamíl tam |
|
Suður-Afríka |
Lýðveldið Suður-Afríka |
South Africa |
ZA |
ZAF |
Suður-Afríkumaður | suðurafrískur |
afríkanska afr botsvanska tsn enska eng ndebele nbl norðursótó nso suðursótó sot súlúska zul svaslenska ssw tsonga tso venda ven xhósa xho |
|
Suður-Súdan |
Lýðveldið Suður-Súdan |
South Sudan |
SS |
SSD |
Suður-Súdani | suðursúdanskur | enska eng | |
Súdan |
Lýðveldið Súdan |
Sudan (the) |
SD |
SDN |
Súdani | súdanskur |
arabíska ara |
|
Súrínam |
Lýðveldið Súrínam |
Suriname |
SR |
SUR |
Súrínami | súrínamskur | hollenska nld | |
Svartfjallaland → Montenegró, Svartfjallaland |
|
Montenegro |
ME |
MNE |
Svartfellingur | svartfellskur | svartfellska srp | |
Svasíland Swaziland |
Konungsríkið Svasíland Konungsríkið Swaziland |
Swaziland |
SZ |
SWZ |
Svaslendingur | svaslenskur |
enska eng svaslenska ssw |
|
Sviss |
Svissneska ríkjasambandið |
Switzerland |
CH |
CHE |
Svisslendingur | svissneskur |
franska fra ítalska ita retórómanska roh þýska deu |
|
Svíþjóð |
Konungsríkið Svíþjóð |
Sweden |
SE |
SWE |
Svíi | sænskur |
sænska swe |
|
Sýrland |
Sýrlenska arabalýðveldið |
Syrian Arab Republic |
SY |
SYR |
Sýrlendingur | sýrlenskur | arabíska ara | |
Tadsíkistan |
Lýðveldið Tadsíkistan |
Tajikistan |
TJ |
TJK |
Tadsíki | tadsískur | tadsíska tgk | |
Taíland Thailand |
Konungsríkið Taíland Konungsríkið Thailand |
Thailand |
TH |
THA |
Taílendingur | taílenskur | taílenska tha | |
Tansanía |
Sambandslýðveldið Tansanía |
Tanzania, United Republic of |
TZ |
TZA |
Tansani | tansanískur |
enska eng svahílí swa |
|
Tékkland |
Tékkneska lýðveldið |
Czech Republic (the) |
CZ |
CZE |
Tékki | tékkneskur | tékkneska ces | |
Tímor-Leste |
Lýðstjórnarlýðveldið Tímor-Leste |
Timor-Leste |
TL |
TLS |
Tímori | tímorskur |
portúgalska por tímorska tet |
|
Tjad → Chad, Tjad |
Lýðveldið Tjad Lýðveldið Chad |
Chad |
TD |
TCD |
Tjadi | tjadneskur |
arabíska ara franska fra |
|
Tonga |
Konungsríkið Tonga |
Tonga |
TO |
TON |
Tongverji | tongverskur |
enska eng tongverska ton |
|
Tógó |
Tógóska lýðveldið |
Togo |
TG |
TGO |
Tógómaður | tógóskur |
franska fra |
|
Trínidad og Tóbagó |
Lýðveldið Trínidad og Tóbagó |
Trinidad and Tobago |
TT |
TTO |
Trínidadi | trínidadískur | enska eng | |
Túnis |
Túniska lýðveldið |
Tunisia |
TN |
TUN |
Túnisi | túniskur | arabíska ara | |
Túrkmenistan |
|
Turkmenistan |
TM |
TKM |
Túrkmeni | túrkmenskur | túrkmenska tuk | |
Túvalú |
|
Tuvalu |
TV |
TUV |
Túvalúi | túvalúskur |
enska eng túvalúska tvl |
|
Tyrkland |
Lýðveldið Tyrkland |
Turkey |
TR |
TUR |
Tyrki | tyrkneskur | tyrkneska tur | |
Ungverjaland |
Lýðveldið Ungverjaland |
Hungary |
HU |
HUN |
Ungverji | ungverskur | ungverska hun | |
Úganda |
Lýðveldið Úganda |
Uganda |
UG |
UGA |
Úgandamaður | úgandskur |
enska eng |
|
Úkraína |
|
Ukraine |
UA |
UKR |
Úkraínumaður | úkraínskur | úkraínska ukr | |
Úrúgvæ Uruguay |
Austræna lýðveldið Úrúgvæ Austræna lýðveldið Uruguay |
Uruguay |
UY | URY | Úrúgvæi | úrúgvæskur |
spænska spa |
|
Úsbekistan |
Lýðveldið Úsbekistan |
Uzbekistan |
UZ |
UZB |
Úsbeki | úsbekskur | úsbekska uzb | |
Vanúatú |
Lýðveldið Vanúatú |
Vanuatu |
VU |
VUT |
Vanúatúi | vanúatúskur |
bíslama bis enska eng franska fra |
|
Vatíkanið → Páfagarður, Vatíkanið |
|
Vatican City State |
|
|
ítalska ita | |||
Venesúela |
Bólivarska lýðveldið Venesúela |
Venezuela (Bolivarian Republic of) |
VE |
VEN |
Venesúelamaður | venesúelskur |
spænska spa |
|
Víetnam |
Alþýðulýðveldið Víetnam |
Viet Nam |
VN |
VNM |
Víetnami | víetnamskur | víetnamska vie | |
Zambia → Sambía, Zambia |
Lýðveldið Sambía Lýðveldið Zambia |
Zambia |
ZM |
ZMB |
Sambíumaður | sambískur | enska eng | |
Zimbabwe → Simbabve, Zimbabwe |
Lýðveldið Simbabve Lýðveldið Zimbabwe |
Zimbabwe |
ZW |
ZWE |
Simbabvemaður | simbabveskur | enska eng | |
Þýskaland |
Sambandslýðveldið Þýskaland |
Germany |
DE |
DEU |
Þjóðverji | þýskur | þýska deu |